„Mistök“ kófsins voru ekki mistök.
Í Morgunblaðsgreinum 27. júní og 7. júlí fjallaði greinarhöfundur um aðdraganda og tilraunastofuuppruna kófsins. Á Event 201-viðburðinum í október 2019, skipulögðum af hagsmunaaðilum, mættu fulltrúar helstu valdastofnana og æfðu faraldursviðbrögð sem fólu í sér frelsisskerðingar, ritskoðun og að veðjað yrði á bóluefni.1) Gríðarlegir viðskiptahagsmunir lágu að baki að allt gengi upp. Planið hafði þó galla: Það tekur áratug að þróa öruggt bóluefni!
Á ráðstefnu 11 dögum síðar minntist Antony Fauci, aðalráðgjafi Bandaríkjaforseta og yfirmaður sóttvarnastofnunar, NIAID, á þennan 10 ára þróunartíma. En bætti svo við að sleppa mætti öryggisprófunum ef neyðarástand skapaðist. Lausnin var fundin.2)
Strax í upphafi kórónufaraldursins var Bandaríkjaforseta seld bóluefnaleiðin (af Fauci) sem leiðin úr kófinu. Leið sem hann og yfirvöld um allan heim keyptu án þess að átta sig á að sleppa yrði öryggisprófununum.
Fyrstu viðbrögð við covid voru óvísindaleg og juku útbreiðsluna. WHO viðurkenndi ekki að covid væri loftborinn þrátt fyrir að þetta væri bráðsmitandi öndunarfærasjúkdómur. Hér á landi þurfti Landakotsmitið til að íslensk yfirvöld færu að varast loftborin smit. Í Bandaríkjunum bönnuðu heilbrigðisyfirvöld fyrst flestar covid-mælingar, þ.a. um miðjan mars 2020 voru skimanir þar hundraðfalt sjaldgæfari en á Íslandi.
Þennan skort á skimunum nýtti Fauci sér til að ofmeta dánartíðnina tífalt og miða hana bara við þessar örfáu mælingar en ekki við raunverulegan fjölda smita. Samtímis birti Imperial College (einn skipuleggjanda Event 201) skýrslu sem spáði allt að 500 þúsund covid-andlátum í Bretlandi nema útgöngubanni yrði beitt.3) Því var svo fylgt.
Allt var gert til að ofmeta hættuna. Nóg var að einstaklingur hefði mælst með covid mánuði fyrir andlát til að andlát væri flokkað sem covid-andlát. Afleiðingin var veruleg fækkun skráðra krabbameinstilfella og hjartaáfalla. Covid læknaði þannig sjúka með því að drepa þá með bókhaldsbrellum úr öðru.
Víða voru lífshættulegar meðferðir teknar upp. Í Bretlandi voru covid-sjúklingar settir á lífslokameðferð (sem auðvitað drap þá). Í Bandaríkjunum fengu spítalar 5 milljóna bónus fyrir að koma sjúklingum í öndunarvél (sem drap marga)4) og læknum var skipað að gefa remdesivir (sem drap líka marga) ef þeir vildu halda vinnunni.
Í maí 2020 tókst hópi lækna að þróa ódýrar skaðlausar meðferð með 85% vernd sem gerði covid mildari en flensu.5) Í stað þess að aflýsa faraldrinum hættu bandarísk yfirvöld að styðja rannsóknirnar. „Warp Speed“-bóluefnaáætlun Trump var hafin. Öllum brögðum var svo beitt til að hrekja rannsóknirnar enda lágu gríðarlegir fjárhagsmunir að baki. Í einni slíkri platrannsókn sem Bill Gates fjármagnaði (BMGF) var sjúklingum gefinn banvænn skammtur af hydroxychloriquine, HCQ, og þeir dóu.6) Erfitt er að halda fram að þetta hafi verið óviljaverk, því HCQ var þekkt lyf með 65 ára sögu. Stærsta hneykslið var rannsókn í Lancet sem hrakti virkni HCQ og varð til þess að WHO hætti öllum rannsóknum á HCQ. 13 dögum síðar var greinin dregin til baka því hún var fölsuð. Ákvörðun WHO varð hins vegar ekki breytt.7)
Þegar sumarið 2020 kom og sóttóttinn rénaði var gripið til grímuskyldu, þrátt fyrir að vitað væri að grímur virkuðu ekki gegn vírusum. Þær virka hins vegar vel við að viðhalda ótta.
Í lok 2020, eftir ár af frelsisskerðingum í krafti neyðarréttar, þurftu yfirvöld um allan heim að réttlæta ofbeldið og voru því til í hvaða tilraunabóluefni sem er, gegn því að komast fremst í röðina.
En til að græða sem mest þurftu allir að bólusetja sig. Fyrir sjúkdóm sem var 1000-falt skæðari þeim elstu en þeim yngstu hefði dugað að bólusetja bara þá elstu. Þá var byrjað að ljúga að fólki að bóluefnin stöðvuðu smit, þótt engar mælingar sýndu fram á slíkt og gangsett eldra plan um bóluefnavegabréf og bóluefnaskyldu. Einnig var sagt að ein bólusetning yrði nóg. Það var líka lygi því strax í janúar 2021 var vitað að virkni bóluefnisins féll um 50-75% þremur mánuðum eftir bólusetningu.8)
Nær allar þessar aðgerðir yfirvalda voru óvísindalegar. Hraðsuðubóluefni, viðurkenna ekki loftborinn vírus, banna covid-skimanir, nota bókhaldsbrellur til að ýkja dánartíðni, lækna með lífslokameðferð, gefa banvæna skammta af HCQ, nota grímur gegn vírusum, lofa hjarðónæmi og bara einni sprautu í stað áskriftar.
Allt var þetta ráðlagt af aðilum tengdum Event 201 sem höfðu ríka hagsmuni af því að bóluefnaleiðin yrði farin. Planið gekk upp og þeir sem stóðu að því stórgræddu. Gróðinn hefði samt orðið mun meiri ef ekki hefði verið fyrir eina óþægilega staðreynd. Bóluefnin voru eitruð.
Í síðari grein verður fjallað um eiturvirknina, en fyrst verður grafið dýpra í jafnvel enn umfangsmeira plan sem vekur fleiri spurningar.
Comments